Sérdeilis

Mér líður sérdeilis betur í dag en aðra daga, held að það hafi haft áhrif að halda skemmtilegt partý og að fókusa á góða hluti. Held líka að það virki svakalega vel að ausa hlutum útúr sér á bloggi, ahh gott. Maður allavegana kann vel að meta það að líða vel eftir að manni hefur liðið mjög illa.

föst

Ég á góða daga og slæma en stundum finnst mér ég vera föst í viðjum sorgarinnar. Mig langar að komast burt frá henni en get það ekki, aðra daga er betra að lifa með henni en ég er samt föst.
Kannski hefur þetta eitthvað að gera með að ég fékk í dag sendan bækling með spurningum sem ég átti að svara um meðgöngu mína og á honum stóð "Spurningar til þín sem átt von á barni". Ég á ekki von á barni lengur, afhverju vissu þeir það ekki bara? Þýðir ekki að spyrja. Ég vil bara fá það aftur og mömmu mína svona í leiðinni... bitur.

svefn

Ég var ekki búin að geta sofnað án þess að bíða leeeeengi, sama hversu þreytt ég var í langan tíma þegar ég ákvað að slappa bara af og hlusta á sögu í ipodinum mínum, þá fór ég loksins að sofna svona eins og einu sinni. Núna er að sofna "eins og einu sinni" gömul minning af hlut sem ég gerði á hverju kvöldi en týndi svo, ég get nánast aldrei sofnað án ipodsins míns, sama hversu þreytt ég er. Ipodinn varð batteríslaus núna áðan þegar ég var búin að vera lengi að reyna að sofna, þar fór það.

Annars svona til að hafa eitthvað jákvætt í boði í þessu bloggi þá ætla ég að segja frá því að ég er búin að ákveða að verða "amerísk" og halda þakkargjörðarhátíð. Hún er víst á fimmtudegi en ég ætla að færa mína á annaðhvort laugardaginn á undan eða eftir. Ég ætla að halda hana í tilefni af öllu því sem ég er þakklát fyrir, mér finnst svo sannarlega ástæða til að halda því hátíð, það verður vonandi gott og skemmtilegt kvöld. 


Missir

Ég sá konu í Íslandi í dag í vikunni tala um sinn missi. Hún missti fóstur á 19. viku og fannst að fólk ætti að tala meira um þetta, henni fannst þetta vera svo lítið í umræðunni og að fólk þaggaði þetta oft bara niður, sérstaklega vinir og fjölskylda.
Stundum nefnilega hjálpar það fólki að ræða um erfiða hluti sem það hefur lent í en sumir sem hafa ekki upplifað sömu hluti finnst það oft vandræðalegt eða óþægilegt og vita ekki hvað þeir eiga að segja. Stundum er nefnilega ekki hægt að segja neitt, nema að manni finnist þetta leiðinlegt eða að maður samhryggist.
Þegar mamma dó þá endaði ég oft með því að hughreysta fólk því það vildi finna einhver orð til að láta mér líða betur en svo þegar þau eru ekki til, þá er það samt hugsunin sem gildir. Mér fannst það persónulega ekki slæmt að breytast í hughreystarann, mér fannst bara gott að geta deilt upplifun minni að þessum harmleik og fundið einlægar tilfinningar fólks á bak við orðin sem þau áttu ekki til.

Síðan í byrjun ársins 2006 þá er ég búin að missa mikið. Stundum vildi ég að ég gæti bara gleymt því eða hætt að hugsa um það og þá yrði bara allt betra en það er víst ekki hægt. Þessir missar eru búnir að móta líf mitt á góðan hátt og slæman. Ég er ekki að segja að ég hugsi um þá allan daginn og velti mér upp úr þeim, ég er meira að segja að þeir eru hluti af mér og ég vil geyma þá þar sem þeir eiga heima, fyrst ég get ekki gleymt þeim.
Þessi kona á stöð2 hjálpaði mér að taka þá ákvörðun að tala út, ég hef fylgst með vinkonu minni gera svipað á bloggi og virðist það hjálpa henni og fleirum. Ég ætla að tala um þetta hér þar sem fólk getur valið að lesa ef það vill, því mér finnst erfitt sjálfri að tala um svona í margmenni eða brydda upp á svona í umræðum. Ég held ég muni fá útrás með því að skrifa þetta. Ég þrái að verða bara laus undan sorginni, ég vil halda áfram með lífið mitt. 

Fyrsti stóri missirinn er sá minnsti, allavegana núna þegar ég horfi aftur. Hann er eiginlega bara fáránlega lítill en á þeim tími sem ég upplifði hann þá var hann það versta sem hafði komið fyrir mig. Ég var að fara að gifta mig en mánuði fyrir brúðkaup hringdi laupurinn í mig og tilkynnti mér að Guð hefði vakið sig og sagt sér að við ættum ekki að gifta okkur. Ég bilaðist, fór til hans og sló hann og reifst að sjálfsögðu í honum, það endaði með því að ég var lamin og send heim í flugvél þar sem ég bjó erlendis. Ég ætla ekki að kafa dýpra í þennan missi enda um geðsjúkan einstakling að ræða en pabbi hans hafði líka glímt við geðsjúkdóma í mörg ár. Ég varð fljótt mjög fegin að vera laus við hann en missirinn var samt mikill og erfitt að treysta aftur að vissu leyti. Í dag er ég gift yndislegum manni, þannig að ég er mjög sátt við að hafa ekki þurft að enda með hinum en vildi þó að hlutirnir hefðu ekki gerst á þennan leiðinlega og vonda hátt. 

Stuttu eftir að ég kom svo heim þá kom í ljós að mamma var líka komin með krabbamein í spjaldhrygginn. Þá byrjaði hryllingssaga veikinda hennar á fullu en hún var þegar búin að berjast við krabbamein í alltof mörg ár. 

Held áfram með þetta seinna. Takk fyrir að lesa. 


Darth maulinn minn

img_4258

 

Hann er alltaf jafn sætur hann litli bróðir og þarf alltaf að vera svalastur á böllunum í skólanum.  


Skólinn

Tölvuforrit og karlmenn:

Adobe Illustrator = Brad Pitt
Fallegur, skemmtilegur en frekar shallow.


Photoshop = Johnny Depp
Fegurð, margslungni, skemmtun, allt frá Jack Sparrow til Edward Scissorhands.

 

Flash = Gordon Brown
Vibbi!


Knús!

http://www.julli.is/knus.htm

Allir að knúsast! 


Loksins!

http://visir.is/article/20081015/LIFID01/635330793

 

Monica er komin með alveg eins hár og Demi Moore! Jibbí! 


Óhræsis strákur... þú ert

Yes Gordon Brown you are an "óhræsis strákur" and I dedicate this song to you because everything you say is gobbledigook to me, you have behaved in a very childish way and put chewing gum in Icelands hair, but the hair will grow back and it will be blonder and more beautiful than ever and you will cry, cause Iceland will never want to take you back, we prefer Russia over you, its prettier with better teeth!


Þú hatta fjúka lætur í loft
þú regnhlíf snú á hvolf allt of oft
ó nei, ekki

Þú þök að fjúka út á brot sjó
þú hári strjúka faldinum sló
Óhræsisstrákur

Þú (Lalalala lalalala... Lalalala lalalala)
Vindur í hárinu - úú
Vindur í hárinu - úú
Vindur í hárinu - úú
Vindur í...
(Lalalala lalalala... Lalalala)

Þú augu fjúka í sand tárast
Þú tyggigúm í hendir hár fast
Óhræsisstrákur

Þú (Lalalala lalalala... Lalalala lalalala)
Vindur í hárinu - úú
Vindur í hárinu - úú
Vindur í hárinu - úú
Vindur í...
(Lalalala lalalala... Lalalala)

 

 


mbl.is Grimmúðlegt og úthugsað auglýsingabragð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sweet mama

Við eigum risa stofu! Um helgina tókum við Kári trévegginn sem hafði verið settur upp í stofunni, á milli stofunnar og tölvunördaherbergisins. Miðað við veggfóðrið sem var undir núverandi veggfóðri geri ég ráð fyrir að það hafi verið á eighties tímanum "yndisfagra", en það var hvítt með pastellituðum löngum kössum með beveleðum hornum, "bjútífúl".
Útkoman er alveg frábær og nú getum við Kári alltaf hangið saman, sama hvað, hehe.
Annars gerði ég Odd minn að eighties phenomenon á fimmtudagskveldið síðasta. Hann var að fara á ball og það var búningakeppni, sem hann að sjálfsögðu vann. Hér er útkoman:

Oddurnegriogco

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er líkur systur sinni:

DSC03430

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

og minnir eitthvað á mág sinn:

DSC03446


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband